Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Mér verður að umhugsunarefni yfirlýsing hæstv. fjmrh. og reyndar hæstv. menntmrh. einnig á þá leið að þessi kjaradeila sé ekki viðfangsefni þingsins. Þetta séu flóknir samningar sem eigi að leysa við samningsborðið.
Að hluta til er þetta alveg rétt. En að verulegu leyti er þetta rangt. Vegna þess að kjaradeilan snýst um peninga og hún snýst um fjárveitingar frá Alþingi. Ríkisstjórnin vill hins vegar stilla dæminu upp á allt annan veg. Hún lítur fyrst og fremst á þetta sem deilur um kerfisbreytingar innan skólakerfisins og innan launakerfisins. Kennarar efna til verkfalls til að bæta kjör sín eða berjast fyrir bættum kjörum. Ríkisstjórnin vill hins vegar þröngva þeim inn í annað launakerfi, skapa einstaklingsbundna samninga, og sú spurning vaknar hvort hún vilji helst greiða götu einkalausna í skólakerfinu. Framsfl. lætur hafa sig inn á það þótt hann tali stundum annarri röddu í umræðu um þessi mál.
Um þetta snýst deilan. Hún snýst um hvers konar skólakerfi við ætlum að reka í landinu og hvers konar launakerfi við ætlum að hafa. Síðast stendur hitt eftir óhaggað að til þess að leysa deiluna verður viðbótarfjármagn að koma til sögunnar og þar kemur til kasta Alþingis.
Þess vegna er það rangt sem þeir halda fram, hæstv. ráðherrar, að þetta mál verði ekki leyst í sölum Alþingis. Það er viðfangsefni Alþingis að leysa þessa deilu.