Félagsþjónusta sveitarfélaga

Þriðjudaginn 21. nóvember 2000, kl. 21:29:10 (2078)

2000-11-21 21:29:10# 126. lþ. 28.8 fundur 242. mál: #A félagsþjónusta sveitarfélaga# (heildarlög) frv., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 126. lþ.

[21:29]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þessar útskýringar hv. þm. Ég veit að hún þekkir þessi mál mjög vel. Hún var m.a. starfsmaður nefndarinnar um tíma sem samdi þetta frv. þannig að ég veit hún þekkir þetta og er að skýra þetta út samkvæmt því.

En ég tek undir það að við þyrftum að skoða þennan þátt í nefndinni þegar málið kemur þar til umfjöllunar.