Félagsþjónusta sveitarfélaga

Þriðjudaginn 21. nóvember 2000, kl. 22:35:52 (2090)

2000-11-21 22:35:52# 126. lþ. 28.8 fundur 242. mál: #A félagsþjónusta sveitarfélaga# (heildarlög) frv., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 126. lþ.

[22:35]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég vil bara taka fram að við skulum ekki vanmeta afstöðu Öryrkjabandalagsins. Það eru heildarsamtök allra félaga fatlaðra sem greiða atkvæði um þessa afstöðu til málsins á fundi þar sem öll greidd atkvæði eru með þessari afstöðu og við skulum ekki vanmeta það. Það voru reyndar tveir sem sátu hjá.

Við skulum því taka þetta alvarlega og skoða málið í ljósi þess.