ÁGunn fyrir PP

Miðvikudaginn 22. nóvember 2000, kl. 13:32:03 (2125)

2000-11-22 13:32:03# 126. lþ. 29.94 fundur 134#B ÁGunn fyrir PP#, Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 126. lþ.

[13:32]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Norðurl. v., Árni Gunnarsson, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Páll Pétursson, 2. þm. Norðurl. v.``

Árni Gunnarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.