Flóttamenn

Mánudaginn 27. nóvember 2000, kl. 15:20:13 (2194)

2000-11-27 15:20:13# 126. lþ. 32.1 fundur 139#B flóttamenn# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur, 126. lþ.

[15:20]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):

Hæstv. forseti. Ég er ekki sammála hv. fyrirspyrjanda í því að þetta sé okkur til skammar. Ég held þvert á móti að Íslendingar hafi tekið mjög vel á móti flóttamönnum og að sjálfsögðu ítreka ég það að við höfum fylgt alþjóðlegum skuldbindingum hvað þetta snertir. Ég er því ekki sammála þeim fullyrðingum sem hér koma fram. Ég vil bara ítreka það.