Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Jón Bjarnason) (andsvar):
Herra forseti. Ég ítreka að ég hef meiri áhyggjur af forgangsröðun í rekstri ríkisins og það er það sem ég hef gagnrýnt.
Það er alveg hárrétt hjá hv. varaformanni fjárln. að fjárln. sjálf ræður ekki öðru en þeim verkefnum sem henni eru falin. En henni er skylt að gera þinginu grein fyrir málum, gera grein fyrir hvar annmarkar liggja í því að framfylgja m.a. lögum um fjárreiður ríkisins og benda á leiðir sem mætti fara til að gera þá framkvæmd bæði þingræðislegri og löglegri. Ég leyfi mér, hæstv. forseti, að segja að nauðsynlegt sé að gera það og einmitt til að bregðast við breyttum útgjöldum er nauðsynlegt að við vinnum fjáraukalög oft á ári, t.d. að vori áður en þing fer heim. Þá væri það tekið fyrir sem komið hefði fram á vorþinginu og afgreitt þá en ekki látið safnast upp á ábyrgð framkvæmdarvaldsins.
Ég tel afar brýnt, herra forseti, að Alþingi fái þessi skilaboð um nauðsyn þess að breyta til.