Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef kannski ekki verið nógu nákvæmur í orðalagi áðan þegar ég sagði að fjárln. hefði ekki unnist tími til að fara yfir heilbrigðismálin því að við erum að vinna þau á vettvangi framkvæmdarvaldsins enn þá en eigum von á því að fá þau inn á borð fjárln. núna í vikunni. Við munum því taka þau fyrir í nefndinni þegar þar að kemur.
Hv. þm. reynir allt hvað hann getur til að koma fram sem hið ábyrga andlit Samfylkingarinnar í fjármálum. Það er virðingarvert og ég fagna því. En hins vegar á ég von á því að þegar herskarinn af fótgönguliðinu mætir í fjárlagaumræðuna, þá verði ekki talað um að draga úr ríkisútgjöldum. Ég man ekki betur en við höfum legið hér, bæði hv. varaformaður og hv. formaður fjárln. undir harðri gagnrýni frá ýmsum þingmönnum Samfylkingarinnar fyrir að auka ekki ríkisútgjöld þó að hv. fjárlaganefndarmenn hafi rekið þessa stefnu undir forustu hv. 7. þm. Reykv.
Varðandi efnahagsstefnuna almennt, þá höfum við unnið í þeim anda að skila afgangi á ríkissjóði til að greiða niður skuldir. Samkvæmt þessu fjáraukalagafrv., hvað sem um það má segja, mun afgangur ríkissjóðs aukast á yfirstandandi ári. Sem betur fer er það mikill kraftur í atvinnulífinu að tekjur hafa aukist þó að hluti af því sé vissulega vegna spennu í þjóðfélaginu og viðskiptahalla. Ég dreg enga fjöður yfir það.