Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Í rauninni ber ekki svo mikið á milli okkar hv. 7. þm. Reykv. í þessum málflutningi. Ég endurtek það sem ég sagði áðan. Ef um framúrkeyrslu er að ræða viljum við fyrst og fremst að tryggt sé að sú framúrkeyrsla sé stöðvuð ef við eigum að bæta það sem upp á vantar. Það finnst mér mergurinn málsins. Í raun er alltaf unnið á þessum nótum. Við erum alltaf að vinna á þessum nótum og fjöldamörg mál hafa komið upp í gegnum tíðina síðan ég fór að kynnast þessum málum sem hafa verið á þennan veg. Stundum tekst þetta vel, stundum tekst þetta miður en á þessum nótum eigum við að vinna. Ég endurtek að þessi regla á auðvitað að gilda yfir alla hvort sem það er æðsta stjórn ríkisins, ráðuneyti eða ríkisstofnanir. Við höldum ótrauð áfram að þessu marki og ég er ánægður með þá samstöðu sem hefur verið um slíkt í þeirri umræðu sem hér hefur farið fram.