Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég er í forundran. Hvaða samkomulag er verið að ræða um? Hefur hv. þm. ekki rekist hér á þykka blaðabunka sem eru ályktanir sveitarstjórna umhverfis landið, þar með talinn Kópavogur, Hafnarfjörður og Reykjavík, svo ég nefni þau sveitarfélög sem eru næst okkur, þar sem þessu meinta samkomulagi er mótmælt. Það er engin sátt eða neitt samkomulag um þessa niðurstöðu. Sveitarstjórnarmenn upplifa þetta þannig að þeim eru falin skítverkin, að hækka skatta á almennt launafólk á þessum svæðum og í bæjarfélögum. Og ég spyr: Líður hv. þm. og bæjarfulltrúa, Gunnari Birgissyni, afskaplega vel með að vera sendur til þeirra verka af ríkisstjórn Íslands, að hækka útsvar einhliða og þráðbeint á Kópavogsbúa?
Það var merkilegt sem hann skaut hér að, að mjög líklegt væri að sveitarfélögin mundu þurfa að hækka skatta núna en það væri meiri spurning á næsta ári. Það skyldi þó aldrei vera að það blandaðist inn í að bæjarstjórnarkosningar verða á því ári?
Herra forseti. Það er alveg sama hvernig þessum peningi er velt, hér verða menn auðvitað að svara þráðbeint. Og staðreyndin er sú að hv. þm. Gunnar Birgisson ætlar að ganga í björg með íhaldinu á hinu háa Alþingi og svíkja menn heima í héraði.