Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Hv. fyrirspyrjandi spyr hvað líði framkvæmd ályktunar Alþingis frá síðasta þingi um varðveislu báta og skipa. Ályktunin er reyndar frá 9. maí, þ.e. seint á síðasta þingi. Það er því stutt liðið frá því að ályktunin var samþykkt.
Tillagan hefur fengið þá hefðbundnu meðferð og afgreiðslu í stjórnsýslunni að forsrn. hefur falið menntmrn. meðferð og framkvæmd hennar. Ég geri ráð fyrir því að ályktunin fái þá meðferð sem henni ber og í anda þeirrar tillögu sem samþykkt var í því ráðuneyti og er ekki í vafa um að ráðuneytið leysi vel úr því verkefni sem því hefur verið falið.
Það kom fram á dögunum í svari við fyrirspurn um meðferð þáltill. fyrr í haust að forsrn. mun láta þinginu héðan af í té árlega skýrslu um meðferð og framkvæmd ályktana Alþingis. Eins og ég gat um á þeim tíma er heppilegt að slíkar skýrslur næðu til ályktana Alþingis frá næstliðnu þingi þar á undan. Þannig ætti að gefast ráðrúm til að efna það sem til er ætlast í þáltill. og um leið hægt að gera því greinargóð skil hver framvinda viðkomandi máls hefur orðið. Ég vænti þess því að geta gefið yfirlit um um hver árangur tillögunnar hefur orðið við þá greinargerð. Að vísu kemur fram í þeirri ályktun eða reyndar í greinargerð ályktunarinnar sem hv. fyrirspyrjandi spyr um að æskilegt sé að hraða meðferð málsins. Ég tel að málið sé út af fyrir sig í eðlilegum gangi þrátt fyrir þessar ábendingar í greinargerðinni. Ég tel að málið sé komið í eðlilegan farveg og muni væntanlega fá málefnalega og góða meðferð sem hægt verður að greina frá í fyllingu tímans.