Fjárlög 2001

Fimmtudaginn 30. nóvember 2000, kl. 12:20:27 (2439)

2000-11-30 12:20:27# 126. lþ. 37.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv., Frsm. meiri hluta JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 126. lþ.

[12:20]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég vona einlæglega að vinnudeila framhaldsskólakennara leysist. Ég ímynda mér ekki að hún leysist án einhverra launahækkana fyrir framhaldsskólakennara. Ég mundi bíða með að ráðstafa fé sem sparast í laun framhaldsskólakennara í eitthvað annað. Ég vildi nota þá peninga þegar samningar liggja fyrir. Þá hygg ég að samið verði um einhverjar launahækkanir við kennarana. Ég get ekki ímyndað mér að þetta leysist öðruvísi.