Fjárlög 2001

Fimmtudaginn 30. nóvember 2000, kl. 12:22:59 (2441)

2000-11-30 12:22:59# 126. lþ. 37.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv., Frsm. meiri hluta JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 126. lþ.

[12:22]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég gerði grein fyrir því í framsöguræðu minni að málefni sjúkrastofnana og daggjaldastofnana væru enn þá í meðferð hjá fjárln. Ég ætla mér ekki að fara út í efnislega umræðu um mál sem við erum enn þá að vinna, hvorki í andsvörum né í ræðum mínum. Þetta er í meðferð hjá okkur. Ég átta mig illa á því að menn taki þessi mál upp í andsvörum í 2. umr. fjárlaga sem ég er búinn að gera grein fyrir að við erum að vinna að.