Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):
Herra forseti. Í frv. er gert ráð fyrir auknu fé til framhaldsskólanna og það er í samræmi við þær reglur sem við höfum sett og þá samninga sem við höfum gert.
Ég vil einnig gera athugasemd við það sem kom fram í máli hv. þm. þar sem mátti skilja orð hans svo að ekki kæmi fram í fjárlagafrv. hvernig fjármunum væri skipt á milli einstakra skóla. Þetta er ekki rétt. Í frv. liggur nákvæmlega fyrir greinargerð um hvernig fé skiptist á milli skólanna, hver er kostnaður við hvern einstakan nemanda í hverjum skóla fyrir sig. Það eru þessar upplýsingar sem gera það m.a. að verkum að menn hafa mun betri yfirsýn yfir skólastarfið en nokkru sinni fyrr og hér er ekki bara um bókhaldsatriði að ræða. Hér er um stjórntæki að ræða sem verður þó ekki virkt til hlítar nema aukin ábyrgð og auknir möguleikar séu færðir í hendur skólameistara til að stjórna öllum starfsmönnum í skólum sínum. M.a. er rætt um það núna, þegar fjallað er um um kjaramál kennara, hvernig megi auðvelda skólameisturum að auka sveigjanleika í starfi skólanna og bregðast við nýjum skyldum, ekki vegna þess að það skorti fé heldur vegna þess að þeir kunna að vera rígbundnir af öðrum ákvæðum sem setja þeim skorður og þarf að huga að. Ef hv. þm. vill í raun stuðla að auknum sveigjanleika í skólakerfinu þá þarf að líta til fleiri þátta en hann nefndi í ágætri ræðu sinni. Sérstaklega minni ég hann á að það liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um það hvernig fé skiptist á milli einstakra skóla og í hvaða þætti þessir fjármunir renna innan skólanna.