Fjárlög 2001

Fimmtudaginn 30. nóvember 2000, kl. 15:16:40 (2477)

2000-11-30 15:16:40# 126. lþ. 37.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv., EOK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 126. lþ.

[15:16]

Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þarf ekki eina mínútu því að svarið við þessu er já. Svarið við þessu er já. Ég kynnti það fyrir Seðlabankanum haustið 1997 að ég teldi að þeir væru að tefla þessa skák vitlaust. Ég gerði það og hef margsinnis gert það síðan. Ég hef margsinnis sagt að ég væri alveg viss um að þeir væru að tefla vitlaust. Ég þarf því ekki að nota nema hálfa mínútu til að svara þessu. Svarið er já.