Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Eins og ég sagði í ræðu minni er unnið að því, í nefndinni sem ég minntist á, að skoða niðurgreiðslu á húshitunarkostnaði og hvort þessi munur er raunverulega fyrir hendi. Fyrst og fremst þarf að komast að þeirri niðurstöðu. Ýmislegt bendir til þess að niðurstöður í skýrslum Fjarhitunar séu ekki alveg nákvæmar. Þess vegna er nauðsynlegt að fara mjög vel yfir þá útreikninga.
Markmiðið er hins vegar að jafna húshitunarkostnað í landinu. Ég vitnaði einmitt til nefndar sem hv. þm. Kristján L. Möller sat í en þar er talað um húshitunarkostnað í tengslum við byggðamál. Í byggðaáætluninni er talað um niðurgreiðslur til rafhitunar en jafnframt lögð áhersla á að stuðla að aukinni notkun á jarðvarma til húshitunar. Það orðalag vísar náttúrlega til þess að tekið verði á húshitunarmálum þar sem hitaveitur eru dýrar. Fyrsta verkið er að komast að því hversu dýrar þær eru og hvernig væri hugsanlega hægt að jafna kostnað hjá íbúum þeirra svæða.