Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Hér er ekki um neina loftfimleika að ræða og óþarfi fyrir hv. þm. að orða þetta svona. Auðvitað þarf að komast að því hver vandinn er. Við leysum vandann ekki nema við þekkjum hann. (KLM: Hann er ljós.) Hann er ekki ljós og af því að ég sá að hv. þm. var að lesa upp úr gögnum sem eru til meðferðar í nefndinni sem ég vitnaði til þá get ég upplýst hann um að í þeirri nefnd eru komin fram önnur gögn sem sýna að hér er ekki um nákvæmar tölur að ræða. Þess vegna er full ástæða til að vinna þetta verk áfram. (Gripið fram í.) Það er ekki neinu til gagns eða góðs að koma fram með rangar upplýsingar eða verk sem er ekki að fullu unnið og mun ekki nýtast þeim sem til er ætlast. Við erum að hugsa um íbúa landsbyggðarinnar sem búa við mismikinn húshitunarkostnað. Það er verkið sem við vinnum að. Við reynum að fá niðurstöðu um hver hinn raunverulegi mismunur er og hvernig á að vinna þetta verk. Það eru margar leiðir til. Ef hv. þm. vildi leiða hugann að því þá eru mjög margar leiðir til þess. Þessar niðurstöður þarf að fá, bæði raunverulegar upplýsingar og hvaða áherslur á að hafa við að greiða niður húshitunarkostnað.