Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég verð að fagna því dásemdarþjóðfélagi við búum í og hve ofboðslega hefur gengið vel hjá okkur Íslendingum að vinna að hag þessarar þjóðar.
Við hlustum á talsmann stjórnarandstöðunnar gagnrýna ríkisfjármálin. Við hlustum á það hvað er að, það er sannarlega ábyggilega allt rétt. Það eru einhver vandræði þarna með stígana fyrir austan í þjóðgarðinum. Það er ástæða til að taka það til greina, þessir stígar eru ekki nógu góðir.
Það er líka ástæða til að taka tillit til þess ef búsetumál smáfugla eru ekki í lagi. Við þurfum að vita betur um það hvar snjótittlingurinn er búsettur á ákveðnum tímum. Við þurfum að vita hvar þrösturinn er og fleiri fuglar, ég tala nú ekki um refinn og minkinn. Þetta er alveg rétt hjá hv. síðasta ræðumanni að geta um að þetta allt saman þarf að bæta mjög mikið. Það er mikil nauðsyn að gera það.
Ég tek undir þessi merkilegu ummæli og þessa miklu gagnrýni sem hefur komið fram á ríkisfjármálin og það sem um er að ræða. Það er ástæða til þess að taka tillit til þess og átta okkur á því hvar smáfuglarnir eru búsettir því að það er ekki mynd á öðru.
En ég bendi mönnum á að það er mikið dásemdarþjóðfélag þar sem þessi vandræði eru helst á döfinni.