Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Við erum að fjalla um eitt af grundvallarátakamálum í samtíð okkar og í stjórnmálum þegar kemur að einkavæðingu innan samfélagsþjónustunnar. Innan heilbrigðisþjónustu, innan öldrunarþjónustunnar og í menntakerfinu og nú lýsir talsmaður Framsfl. því yfir, hv. þm. Jón Kristjánsson, að eðlilegt sé að gera á því tilraun hvort rétt sé að hefja einkavæðingu í menntakerfinu. Annaðhvort er þetta ótrúlegur pólitískur barnaskapur eða að menn eru að reyna að skjóta sér undan ábyrgð með því að kalla það tilraunastarfsemi þegar farið er að vilja einkavæðingarsinnanna í Sjálfstfl. Mér finnst að alþingismenn og þjóðin eigi annað og betra skilið en málflutning af þessu tagi. Ég kann betur að meta það að menn komi hreint til dyranna og kalli hlutina réttum nöfnum.