Steingrímur J. Sigfússon:
Forseti. Fjármagn hefur verið aukið verulega til utanrrn. á undanförnum árum. Um það hefur ekki verið deilt að þörf hefur verið á því að efla utanríkisþjónustu okkar en það er líka ástæða til þess að líta til þátta þar sem hægt er að spara fé. Við hjá Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði teljum óþarfa að reka sérstaka varnarmálaskrifstofu til að snúast kringum ameríska herinn á Keflavíkurflugvelli fyrir heilar 62 millj. kr. á ári. Við leggjum til að gengið verði til samninga um að herinn hverfi af landi brott og þar með má spara útgjöld við rekstur varnarmálaskrifstofu hjá utanrrn. Við leggjum því til að þessi liður lækki allverulega en þó verði skildar eftir 10 millj. kr. á fjárlögum til þess að loka starfseminni niður.