Kolbrún Halldórsdóttir:
Herra forseti. Hér er um að ræða síðasta liðinn í þeim tillögum sem Vinstri hreyfingin -- grænt framboð hefur lagt til að verði bætt við fjárlög komandi árs. Nú er um að ræða Náttúrufræðistofnun Íslands sem við gerum ráð fyrir að þurfi á 25 millj. að halda til viðbótar við það sem hún fær í yfirstjórn til að Náttúrufræðistofnun Íslands geti á sama máta og Náttúruvernd ríkisins hafið vinnu við gerð náttúruverndar\-áætlunar. En þess ber að geta að Náttúrufræðistofnun Íslands hefur ekki fengið eina einustu krónu sérgreinda til þessa verkefnis.