Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Jón Bjarnason) (andsvar):
Herra forseti. Ég tek eindregið undir það með hv. formanni fjárln. Það er einmitt veika hliðin sem birtist okkur við framkvæmd fjármála og fjárlaga og í efnahagsstjórninni á þessu ári að ekki hefur tekist að koma á því jafnvægi sem við vildum koma á. Það skapar þenslu og það skapar spennu og það skapar óróleika sem við erum líka að glíma við í hinum almennu efnahagsmálum. Það er áfram eitt brýnasta viðfangsefnið að skapa jöfnuð á milli landsmanna, óháð búsetu og einmitt að leiðrétta, þó ekki sé nema félagslega íbúðakerfið. Það er alveg furðulegt að ekki skuli vera komin nein lausn á þeim vanda sem er hvað erfiðastur fyrir sveitarfélögin vítt og breitt um landið.