Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Ég sagði áðan að bókhaldslega kynnu að vera ákveðin rök fyrir breytingunni. Ég skal alveg skrifa upp á það. Hins vegar er hægt að horfa á þetta frá öðrum sjónarhóli eins og ég nefndi, þ.e. út frá hagsmunum þeirra málaflokka sem hér er um að ræða.
Annars vegar erum við að tala um Framkvæmdasjóð fatlaðra, til uppbyggingar á sambýlum og stofnunum fyrir þá. Komið hefur fram að framlagið hefur verið skert um 1.500 millj. kr. á síðustu fimm árum. Ég tel að þessum fjármunum hefði verið betur varið til uppbyggingar á stofnunum fyrir fatlaða en annarra verkefna. Ég held að við þurfum að íhuga hvort ríkisvaldið hefði betur farið að þeim lögum sem sett voru á sínum tíma.
Ég tek að vissu leyti undir með hæstv. forsrh. Það eru ákveðin rök fyrir því að beint framlag sé ákvarðað af þinginu hverju sinni til þessara málaflokka. Hins vegar, þegar málin eru skoðuð til enda, hefði málefnið og málaflokkurinn verið betur settur með þessum hætti. Þannig þurfum við að hugsa þetta mál.