Sigríður Jóhannesdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr svör. Ég verð þó að segja að þegar ljóst er fyrir hvað orðin ,,og fleira`` standa þá blasi enn betur við að ekki er ástæða til að skerða þennan sjóð að sinni. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu gamalla bygginga. Í þeim málum er brýn þörf og þyrfti mun meira fjármagn en varið er hér á landi til að varðveita gamlar byggingar sem hafa umtalsvert menningargildi.