Ögmundur Jónasson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég vil taka undir það sem fram kom í máli formanns þingflokks Samfylkingarinnar, hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur. Staðreyndin er sú að formenn þingflokka komu saman til fundar um hádegisbilið og ræddu þinghaldið, þar á meðal þingfundi í dag. Ég stóð í þeirri trú að boðað yrði til fundar formanna þingflokka þegar liði á daginn til að ræða um þinghaldið og hversu lengi skyldi haldið áfram í dag.
Ég vil gera að tillögu minni, herra forseti, að gert verði örstutt hlé og þingflokksformenn komi saman til að ræða framhald þessa þingfundar.