Frsm. samgn. (Árni Johnsen):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frv. til laga um breytingu á lögum um skráningu skipa, nr. 115/1985, með síðari breytingum. Samgn. stendur öll að þessu áliti.
Nefndin hefur fjallað um frv. og fengið á sinn fund Helga Jóhannesson frá samgrn.
Í frv. er gert ráð fyrir að heimilt verði að skrá kaupskip þurrleiguskráningu þegar skilyrðum laganna um eignarráð er ekki fullnægt en aðili, sbr. 1. mgr. 1. gr. laganna, hefur hins vegar umráð skipsins með samningi. Tilgangur frv. er að rýmka heimildir til að skrá kaupskip á íslenska skipaskrá og leggur nefndin til að frv. verði samþykkt.