Árni Steinar Jóhannsson:
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir umræðuna sem hefur að mestu leyti verið jákvæð en ég vil nota þennan tíma til að byrja á því að vara hæstv. landbrh. við að vera með sleggjudóma af því tagi sem komu fram í málflutningi hans áðan vegna þess að við höfum upplifað það út um allan heim að menn hafa ekki hlustað á röksemdir og sagt að allt sé í lagi þó að það hafi ekki verið. Og menn hafa tekið áhættu sem hefur reynst dýrkeypt. Umræðan er að sjálfsögðu góð og allir eru hér í umræðu undir því yfirskyni að láta gott af sér leiða og afstýra vandamálum sem e.t.v. kunna að koma fram.
Ég vil benda hv. þm. á að þetta mál með fiskimjölið er náttúrlega fyrst og fremst pólitískt mál vegna þess að það voru neytendur sem fylltust viðbjóði í Evrópu þegar fréttirnar komu um að rutt var í gegnum dýrin afgangsolíu og jafnvel saur. Auðvitað þarf að ræða þessi mál vegna þess að sannleikurinn í slíkum málum kemur ævinlega í ljós og við eigum að vera bestir og það er það sem þessi málflutningur gengur út á. Það er þess vegna sem ég t.d. hvatti hæstv. sjútvrh. til þess að beita sér fyrir því að þær grunnrannsóknir sem nauðsynlegar eru til markaðsfæra verði gerðar. Það styrkir stöðu okkar. Það gerir okkur kleift að vinna áfram.
Ég vil að síðustu árétta að auðvitað þökkum við utanríkisþjónustufólki okkar fyrir að hafa unnið áfangasigur í þessu máli en það er alveg himinklárt að undirbúningsvinna okkar, rannsóknir þar sem hægt er að rekja vinnsluferlið og hollustu vörunnar er okkur alger nauðsyn til framtíðar litið.