Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég vil þakka þessa umræðu sem sýnir að mikil samstaða er um að halda uppi miklum gæðum í íslenskri framleiðslu og ég er algerlega sammála því að við þurfum að vanda mjög til allrar framleiðslu hér á landi og gera miklar kröfur til okkar sjálfra og til sjávarútvegs okkar.
Það er hins vegar alveg rétt eins og kom fram hjá hæstv. sjútvrh. að það voru ekki vísindaleg rök sem hér réðu úrslitum heldur pólitísk átök. Það var viðurkennt af öllum sem við töluðum við að við hefðum hin vísindalegu rök algerlega með okkur. Hins vegar væri það hættan á blöndun sem réði ferðinni og það vantraust sem hefði skapast á markaðnum og að endurvinna þyrfti það traust neytenda. Út á það gekk málið. Og það var í því ljósi sem mjög erfitt var að koma að nauðsynlegum rökstuðningi. Það var erfitt að fá menn til að fara eftir honum. Það tókst í þetta skiptið en vegna spurningar hv. þm. Jóhanns Ársælssonar, þá er það alveg ljóst að við höfum ekki sömu áhrif á gang í svona máli og aðildarríki að Evrópusambandinu, án þess að ég ætli eitthvað að blanda því inn í umræðuna um það, þá liggur það alveg ljóst fyrir. Við höfum ákveðin áhrif upp að ákveðnu stigi en þegar mál eru komin inn í ráðherraráðið þá eigum við ekki aðgang að því borði. Það liggur alveg ljóst fyrir og hefur alltaf legið ljóst fyrir. Það eina sem við getum gert er að tala við aðildarþjóðirnar og það er það sem við höfum gert í þessu máli. Sem betur fer tókst það bærilega í þetta skipti en svona mál geta að sjálfsögðu komið upp aftur og þess vegna þurfum við að halda vöku okkar.