Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Það er hvorki smámál né smáaurar fyrir launamann með 100 þús. kr. í laun þegar þriggja mánaða launahækkun hverfur vegna fyrirhugaðrar skattahækkunar sem ríkisvaldið ber ábyrgð á hvort sem því líkar betur eða verr vegna þess að verið er að bæta sveitarfélögunum tekjutap sem orsakast hefur af ákvörðunum ríkisvaldsins, annars vegar vegna verkefnaflutnings og hins vegar vegna skattalagabreytinga.
Hæstv. ráðherra getur ekki komið sér hjá eða skotið sér undan þeirri ábyrgð að við erum að tala um almenna skattahækkun sem ríkisvaldið ber ábyrgð á og þetta eru miklir peningar a.m.k. hjá þeim sem hefur ekki meira en um 100 þús. kr. tekjur á mánuði.