Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa fsp. Það er auðvitað löngu tímabært að þingmenn Reykjavíkur láti til sín taka heilsugæsuþjónustuna hér í borginni. Það er ekki viðunandi að lögbundin heilsugæsluþjónusta sé ekki til staðar fyrir jafnstóran hóp og íbúa Voga- og Heimahverfis. Þar býr á fjórtánda þúsund manns og mér er sem ég sæi þingmenn landsbyggðarinnar sætta sig við að svæði með svo mörgum íbúum hefði ekki sérstaka heilsugæslustöð, eins og þeim ber samkvæmt lögum.
Ekki er hægt að bera því við að húsnæði hafi ekki staðið til boða. Ég veit að Reykjavíkurborg hefur boðið m.a. húsnæði í Þróttheimum og einnig húsnæði í Glæsibæ. En ég fagna því ef húsnæði Hrafnistu verður fyrir valinu því hvar svo sem heilsugæslustöðin verður niðurkomin þá þarf heilsugæslu á þetta svæði. Það er athyglisvert að á þessu svæði búa mun fleiri aldraðir en annars staðar í borginni, 20% af íbúunum eru yfir 67 ára. Þannig er orðið mjög mikilvægt að þetta svæði fái sérstaka heilsugæslu.