Málefni aldraðra

Fimmtudaginn 07. desember 2000, kl. 18:36:58 (2975)

2000-12-07 18:36:58# 126. lþ. 43.10 fundur 317. mál: #A málefni aldraðra# (Framkvæmdasjóður aldraðra) frv. 172/2000, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 126. lþ.

[18:36]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég á ekki von á því að þetta hlutfall breytist mjög vegna þess að sveitarfélögin hafa margsinnis komið til móts við ríkið með flýtifé til að framkvæma og það kallar á aukið rekstrarfé. Ég tel að eins og málaflokkurinn hefur verið byggður upp sé hann í nokkuð góðum farvegi og sú samvinna sem við höfum átt við sveitarfélögin hafi skipt gífurlega miklu hvað þetta varðar.