Fjárlög 2001

Föstudaginn 08. desember 2000, kl. 12:07:27 (3023)

2000-12-08 12:07:27# 126. lþ. 44.13 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv. 181/2000, Frsm. meiri hluta JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 126. lþ.

[12:07]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef í rauninni ekki miklu við þetta að bæta. Ég hef gefið um þetta yfirlýsingar bæði við umræður um fjáraukalög og fjárlög og þær yfirlýsingar eiga að vera jafngildar athugasemdum í nefndaráliti og ég staðfesti það hér með.