Ólafur Örn Haraldsson:
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir brtt. á þskj. 472 við frv. til fjárlaga fyrir árið 2001 frá nefndarmönnum í menntmn. Nefndin hefur fjallað um úthlutun heiðurslauna listamanna fyrir næsta ár. Tveir þeirra sem voru handhafar heiðurslauna í ár eru nú látnir. Menntmn. leggur til að tíu nýir listamenn bætist í hóp þeirra listamanna sem njóta heiðurslauna.
Leggur menntmn. til að 21 listamaður njóti heiðurslauna árið 2001. Þessir listamenn eru Atli Heimir Sveinsson, Árni Kristjánsson, Ásgerður Búadóttir, Erró, Fríða Á. Sigurðardóttir, Guðbergur Bergsson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Gunnar Eyjólfsson, Hannes Pétursson, Herdís Þorvaldsdóttir, Jón Nordal, Jórunn Viðar, Kristján Davíðsson, Matthías Johannessen, Róbert Arnfinnsson, Rúrik Haraldsson, Stefán Hörður Grímsson, Thor Vilhjálmsson, Þorsteinn frá Hamri, Þráinn Bertelsson og Þuríður Pálsdóttir.
Jafnframt gerir nefndin tillögu um að hver heiðurslaun verði 1.500 þús. kr. Menntmn. stendur einróma að þessari tillögu en Þorgerður K. Gunnarsdóttir tók ekki þátt í afgreiðslu málsins vegna tengsla við það.