Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. staðfestir hér það sem allir vita reyndar, að það er munur á loforðum og efndum Framsfl. þegar kemur að barnafólki. Það þvælist eiginlega fyrir manni að nefna slagorð þeirra ,,Fólk í fyrirrúmi`` þegar maður hugsar til efnda þeirra á kosningaloforðum. Sjálfsagt verða margir til að rifja upp hvernig þeir hafa efnt helstu kosningaloforð sín.
Hv. þm. ber fjmrn. alltaf fyrir sig í því efni að ekki þurfi að breyta launaforsendum. Ég spyr: Hefur fjárln. ekki sjálfstæðan vilja í þessu efni? Fer hún bara eftir því sem fjmrn. segir? Það liggur fyrir að Þjóðhagsstofnun spáir 5,8% verðbólgu á næsta ári sem sýnir að það þarf að hækka þann lið sem snýr að lífeyrisgreiðslum aldraðra og öryrkja ef ekki á að brjóta lög hér strax í upphafi ársins vegna þess að þá þarf að hækka greiðslur til þessa hóps um hvorki meira né minna en 450 millj. kr., en samkvæmt lögum eiga bætur þeirra að miðast við laun eða verðlag eftir því hvort gefur meira. En það er auðvitað vani hjá ríkisstjórninni að hún miðar alltaf við það sem minnst gefur lífeyrisþegum og það ætlar hún eina ferðina enn að gera.
Síðan lýsir hv. þm. því yfir að áform séu uppi um að auka enn á lyfjakostnað heimilanna og er ekki bætandi á þá pinkla sem ríkisstjórnin er þessa dagana að leggja á heimilin í landinu.