Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 11. des. 2000:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Austurl., Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
1. þm. Austurl., Halldór Ásgrímsson.``
Jónas Hallgrímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.