Fjárlög 2001

Mánudaginn 11. desember 2000, kl. 11:38:08 (3126)

2000-12-11 11:38:08# 126. lþ. 45.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv. 181/2000, JónK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur, 126. lþ.

[11:38]

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Ég legg til að þessir töluliðir verði samþykktir en vek þó athygli á því að á bls. 9 í atkvæðaskjalinu er brtt. frá 1. minni hluta fjárln. þar sem er breyting á heiti liðarins. Ég legg til að sú tillaga verði samþykkt og heitinu verði breytt en að öðru leyti legg ég til að þessir töluliðir verði samþykktir ásamt brtt. á þskj. 457, 5. tölulið b--i.