2000-12-11 11:42:35# 126. lþ. 45.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv. 181/2000, SJóh (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur, 126. lþ.

[11:42]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Þegar rekstur grunnskólans var fluttur til sveitarfélaganna tók ríkið að sér að sjá grunnskólabörnum í landinu áfram fyrir námsbókum eins og verið hafði um áratuga skeið. Síðan hefur verið gefin út ný námskrá fyrir grunnskólastigið en ekki hefur verið hægt að fylgja henni eftir með viðhlítandi námsgagnagerð vegna þess fjársveltis sem Námsgagnastofnun hefur verið haldið í þannig að þeir ná nú aðeins að endurprenta gamalt efni.

Til að losna úr þessu hjólfari og gera námsefni íslenskra barna sambærilegt við það sem gerist í nágrannalöndum og þannig úr garði gert að það haldist í hendur við gildandi námskrá leggur Samfylkingin til að settar verði 100 millj. til viðbótar til námsgagnagerðar árið 2001. Ég samþykki þessa tillögu sem hér liggur fyrir.