Fjárlög 2001

Mánudaginn 11. desember 2000, kl. 11:53:20 (3131)

2000-12-11 11:53:20# 126. lþ. 45.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv. 181/2000, GE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur, 126. lþ.

[11:53]

Gísli S. Einarsson:

Herra forseti. Við styðjum þessar tillögur, 25.--29. lið, en það er sérstaklega vegna tillögu um 4,5 millj. kr. viðbótarfjárveitingu til sýslumannsins í Borgarnesi sem ég vil lýsa ánægju minni vegna þess að við hv. 3. þm. Vesturl. höfum rætt um þessi mál bæði hér og gert tillögu um viðbótarfjárveitingu og við lýsum mikilli ánægju með að þetta hafi verið gert á þennan veg.