Fjárlög 2001

Mánudaginn 11. desember 2000, kl. 12:33:34 (3151)

2000-12-11 12:33:34# 126. lþ. 45.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv. 181/2000, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur, 126. lþ.

[12:33]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Hæstv. félmrh. gaf yfirlýsingu þegar gengið var eftir því við 3. umr. um fjárlagafrv. hvernig hann ætlaði sér að reyna að standa við loforð um rekstrarframlag nýrra sambýla vegna yfirlýsinga sem hann af í því efni fyrir nokkrum dögum.

Hæstv. ráðherra vísaði á fjáraukalög næsta árs í því sambandi. Hér er verið að tryggja að þessi yfirlýsing hæstv. ráðherra fái þegar lagastoð.