Einar Már Sigurðarson:
Herra forseti. Nú er komið að lokaafgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2001. Því miður tekur frumvarpið ekki á þeim meginvandamálum sem til staðar eru í efnahagslífi þjóðarinnar. Það er ekki tekið nægilega mikið mark á þeim viðvörunum sem fram hafa komið í umræðum um fjárlögin. Viðskiptahallinn vex enn þá. Verðbólgan er komin í gang á ný og gengi krónunnar er veikt. Þá er ekki bættur hagur þeirra sem minnst hafa fengið úr góðærinu.
Herra forseti. Fjárlögin eru á ábyrgð stjórnarmeirihlutans. Þingmenn Samfylkingarinnar sitja hjá við lokaafgreiðsluna.