Frestun vegaframkvæmda

Þriðjudaginn 12. desember 2000, kl. 13:54:26 (3167)

2000-12-12 13:54:26# 126. lþ. 46.1 fundur 189#B frestun vegaframkvæmda# (óundirbúin fsp.), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 126. lþ.

[13:54]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):

Herra forseti. Það hefur vakið athygli mína að stundum þegar ég hef nefnt að svo gæti farið að fresta þyrfti framkvæmdum við gatnamót Víkurvegar og Vesturlandsvegar, þá hafa bæði borgarfulltrúar og þingmenn vakið athygli á því að framkvæmdir væru undirbúnar í Hafnarfirði, á Reykjanesbrautinni. Það mætti halda að þeir teldu eðlilegt að fresta þeim. Þessum ágætu þingmönnum vil ég segja það að ég mun ekki gera tillögu um að fresta framkvæmdum við Reykjanesbraut, þeir geta treyst því.