Fjárhagsvandi Vesturbyggðar

Þriðjudaginn 12. desember 2000, kl. 14:06:26 (3177)

2000-12-12 14:06:26# 126. lþ. 46.1 fundur 191#B fjárhagsvandi Vesturbyggðar# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 126. lþ.

[14:06]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Eins og ég er hef margsinnis sagt liggur ekki fyrir neitt samkomulag við Vesturbyggð um þetta atriði. Hins vegar höfum við orðið vör við skýran vilja Vesturbyggðar til að reyna að gera sér peninga úr þessum eignarhluta í Orkubúi Vestfjarða. Lengra er málið ekki komið. Ef önnur sveitarfélög á Vestfjörðum hafa áhuga á að leysa til sín þennan hlut á viðunandi verði væri mjög gott að sá vilji kæmi fljótlega fram þannig að Vesturbyggð vissi að hún ætti þar væntanlega viðskiptamenn.