Aðgerðir lögreglunnar í fíkniefnamálum

Þriðjudaginn 12. desember 2000, kl. 14:14:28 (3183)

2000-12-12 14:14:28# 126. lþ. 46.1 fundur 193#B aðgerðir lögreglunnar í fíkniefnamálum# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 126. lþ.

[14:14]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):

Herra forseti. Ég verð að segja að ég hafði ekki séð þá frétt sem hv. þm. er að spyrja um en mér finnst sjálfsagt að kanna þetta mál. Ég geri hins vegar fastlega ráð fyrir því að lögreglan hafi talið ástæðu til að hafa þarna fíkniefnaleitarhund með í för. En eins og ég sagði áðan mun ég skoða þetta mál sérstaklega.