Frsm. umhvn. (Kristján Pálsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli.
Hv. umhvn. fjallaði um málið á mörgum fundum og kallaði til sín marga aðila en þeir eru Ingimar Sigurðsson frá umhvrn., Elín Guðmundsdóttir og Sjöfn Sigurgísladóttir frá Hollustuvernd ríkisins, Halldór Runólfsson yfirdýralæknir, Ágúst Elíasson frá Samtökum fiskvinnslustöðva, Alda Möller, sjálfstætt starfandi ráðgjafi, Friðrik Blomsterberg frá SÍF og Finnur Garðarsson frá SH-þjónustu.
Umsagnir um málið bárust nefndinni frá Læknafélagi Íslands, Öldu Möller, SH-þjónustu, Samtökum fiskvinnslustöðva og SÍF.
Herra forseti. Upphaf málsins er það að sýking og útbreiðsla vegna kampýlóbakter í umhverfi, húsdýrum og matvælum og orsakir hennar á mönnum hafði valdið miklum usla og því var að frumkvæði umhvrn. og stofnana þeirra farið út í að breyta lögum nr. 93/1995, um matvæli.
Helstu breytingarnar eru þær að settar eru reglur þess efnis að þeir sem starfa við framleiðslu og dreifingu matvæla sæki námskeið um meðferð matvæla. Einnig er tekinn af allur vafi um skyldur eftirlitsaðila um að vinna að forvörnum og því að upplýsa mál sem upp kann að koma þannig að gripið verði til viðeigandi ráðstafana eins fljótt og kostur er og áður en í óefni er komið. Þarna er fyrst og fremst verið að hugsa um hag neytenda og að neytandinn hafi forgang og að eftirlitsskylda sé skýr.
Í 2. gr. er fjallað um þá sem annast rannsóknir og greiningu á matvælum og lögð áhersla á að ef upp koma tilkynningarskyld atvik þar sem um er að ræða sjúkdóma sem ógnað geti almannaheill, þá beri bæði rannsóknaraðila og matvælaframleiðanda að tilkynna viðkomandi yfirvöldum um að hætta sé á ferðum. Yfirvöldum ber síðan að grípa til viðeigandi ráðstafana.
Einnig er gert ráð fyrir námskeiðum og fræðslu starfsmanna sem vinna við afgreiðslustörf og matvælaframleiðslu. Fyrirkomulag þeirra námskeiða verður sett með reglum sem ráðherra mun setja. Þau námskeið munu verða haldin af heilbrigðiseftirlitum og jafnvel einkaaðilum en fram kom í störfum nefndarinnar að eitt slíkt dagsnámskeið gæti kostað um 10 þús. kr. á mann.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, herra forseti, að með vaxandi matvælaframleiðslu og með vaxandi flutningi milli landa og hér heima breiðast sjúkdómar mjög hratt út. Nefndin telur því að þetta mál sé mjög brýnt og að fest sé í sessi þetta námskeiðahald og reglur um það og ábyrgð rannsóknaraðila og eftirlitsaðila og matvælaframleiðanda um tilkynningarskyldu.
Nefndin telur einnig rétt að benda á að brátt er þörf á heildarendurskoðun á þessum lögum í ljósi breytinga á matvælaráðgjöf í Evrópu en fyrr á þessu ári gaf Evrópusambandið út svokallaða Hvítbók (White Paper on Food Safety) en í henni greinir m.a. frá að innan skamms sé stefnt að nýrri löggjöf um matvælaöryggi og neytendavernd af hálfu Evrópusambandsins og stofnuð verði ný matvælastofnun í Evrópu.
Umhvn. leggur til að frv. verði samþykkt með eftirfarandi breytingu við 2. gr. að í stað orðsins ,,matvælafyrirtæki`` komi: þeir sem framleiða matvæli eða dreifa þeim.
Hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Ísólfur Gylfi Pálmason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir þetta skrifa Ólafur Örn Haraldsson formaður, sem gat ekki verið viðstaddur umræðuna í dag, Kristján Pálsson, sá sem hér stendur, Ásta Möller, Katrín Fjeldsted, Gunnar Birgisson og Jóhann Ársælsson.