Hjálmar Árnason (andsvar):
Herra forseti. Ég held að þarna gæti einhvers misskilnings. Öll þau göfugu og fögru markmið sem hv. þm. taldi hér upp eru hin sömu og búa að baki þessu frv. Ég tel að ekki sé hægt að skilja frv. með nokkrum öðrum hætti en því sé ætlað að efla möguleika atvinnulausra á að afla sér starfsmenntunar til þess að komast úr fari atvinnuleysis og skapa sér meiri möguleika, m.a. vegna þess að fjölbreytileiki og kröfur um starfsmenntun eru alltaf að aukast í atvinnulífinu.
Ég átta mig ekki alveg á málflutningnum. Ég tel í raun að þarna sé ekki um ágreining að ræða. Menn eru kannski að reyna að koma af stað málþófi en markmiðin eru augljós og ég tel enga ástæðu til að draga þau í efa. Við virðumst nokkuð sammála um meginmarkmiðin, fjármununum er samkvæmt frv. varið til að ná þessum markmiðum. Ég á bágt með að trúa því að hv. þm. geti verið mótfallinn því.