Atvinnuleysistryggingar

Miðvikudaginn 13. desember 2000, kl. 12:20:09 (3265)

2000-12-13 12:20:09# 126. lþ. 47.22 fundur 347. mál: #A atvinnuleysistryggingar# (fræðslusjóðir) frv. 182/2000, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 126. lþ.

[12:20]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Að sjálfsögðu er til í félmrn. yfirlit um hvaða starfsmenntun er í boði. Ég veit hins vegar ekki um hvort starfsmenntaráð hefur talið hausana sem þurfa á starfsmenntun að halda eða hendurnar. En ég skal reyna að afla þeirra upplýsinga og beita mér fyrir því að koma þeim til hv. félmn.