Lokafjárlög 1998

Miðvikudaginn 13. desember 2000, kl. 13:41:53 (3277)

2000-12-13 13:41:53# 126. lþ. 47.17 fundur 260. mál: #A lokafjárlög 1998# frv., fjmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 126. lþ.

[13:41]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til lokafjárlaga fyrir árið 1998 sem dreift hefur verið á þskj. 287 og er 260. mál þingsins.

Frv. var lagt fyrir á síðasta þingi en var þá ekki afgreitt og er nú endurflutt með nokkrum breytingum sem þó eru fyrst og fremst tæknilegs eðlis. Framsetningu á talnaefni frv. hefur verið breytt nokkuð frá fyrri gerð þess í samræmi við þær viðmiðanir um uppgjör á fjárreiðum ríkisaðila, sem hafa verið mótaðar af fjmrn. og ríkisbókhaldi í tengslum við gerð ríkisreiknings fyrir árin 1998 og 1999. Breytingin frá fyrri gerð frv. felst í breyttu uppgjöri á mörkuðum skatttekjum sem renna til stofnana og verkefna á gjaldahlið ríkissjóðs. Uppgjör á slíkum mörkuðum tekjum miðast nú almennt við tekjurnar sem innheimtast á árinu í stað álagðra tekna í fyrri gerð frv., nema í þeim undantekningartilvikum þar sem um er að ræða aðila utan A-hluta ríkissjóðs sem annast sjálfur álagningu og innheimtu teknanna. Breytingin á uppgjörinu hefur nokkur áhrif á hækkanir og lækkanir á fjárheimildum ársins 1998 sem lagðar eru til í sundurliðun 1 í frv. vegna frávika bókfærðra markaðra tekna frá áætlun fjárlaga. Á þeim fjárlagaliðum þar sem það á við breytist þá einnig staða fjárheimilda í árslok miðað við fyrri gerð frv., þar með staða sem kann að vera felld niður í sundurliðun 1 í frv. eða flutt til næsta árs, samanber yfirlit í sérstöku fylgiskjali. Að öllu samanlögðu eru áhrifin af breyttu uppgjöri á þessum þætti frv. þó ekki teljandi. Vakin er athygli á að staða fjárheimilda í árslok og flutningur stöðu til ársins 1999 samkvæmt ríkisreikningi 1998 og 1999 er ekki í öllum tilvikum eins og í frv. þar sem gengið var frá því talnaefni áður en viðmiðanirnar fyrir uppgjörinu í frv. voru fullmótaðar. Þar sem það á við eru fjárheimildirnar þá leiðréttar til samræmis við frv. í reikningi næsta árs.

Frv. til lokafjárlaga er lagt fram í samræmi við lög nr. 88/1997, um fjárreiður ríkisins, og er til staðfestingar á ríkisreikningi 1998. Samkvæmt 45. gr. fjárreiðulaga skal í lokafjárlögum leita heimilda til uppgjörs á gjöldum umfram fjárheimildir ársins og á ónotuðum fjárveitingum sem ekki eru fluttar á milli ára. Jafnframt skal í frv. leggja fram sérstaka skrá yfir geymdar afgangsheimildir og um þá aðila sem hafa farið fram úr fjárheimildum ársins. Heimild er í lögunum til að greiða slík umframgjöld af fjárveitingu næsta árs. Einnig skal í frv. gera grein fyrir ónýttum lántökuheimildum liðins árs.

Í 1. gr. frv. eru lagðar til breytingar á fjárheimildum stofnana og verkefna vegna frávika á öðrum rekstrartekjum og mörkuðum tekjum miðað við fjárlög en nánari skipting er í sundurliðun 1. Er um að ræða breytingar í samræmi við niðurstöður ársins 1998 þar sem skilað er lögboðnum ríkistekjum til þeirra verkefna sem þær eru ætlaðar eða fjárheimild lækkuð í þeim tilfellum að tekjurnar hafa verið ofáætlaðar í fjárlögum 1998.

Í 2. gr. er sótt um heimildir til uppgjörs á ónotuðum fjárveitingum og umframgjöldum sem ekki flytjast á milli ára og vísa ég til nánari skiptingar í sundurliðun 2.

[13:45]

Í sumum tilfellum eru heimildir felldar niður í árslok og er þar um nokkuð hefðbundna afgreiðslu að ræða sem breytist lítið á milli ára. Veigamikil breyting er þó fólgin í því að nú eru fjárlög á rekstrargrunni og því sýnd rekstrarstaða stofnana sem ekki eru með efnahag í A-hluta ríkisreiknings, eru það einkum sjálfseignarstofnanir. Lagt er til að staða þessara stofnana miðað við fjárheimildir verði felld niður í árslok, enda miðast framlög til þeirra við fjárveitingar í fjárlögum og skuldir eða inneignir þessara stofnana eru við aðila utan ríkisins. Einnig er sótt um breytingar á fjárheimildum lögboðinna tilfærsluverkefna, svo sem almannatrygginga, og til breytinga á ríkistekjum sem m.a. eru taldar í 1. gr.

Í fylgiskjali er í samræmi við 45. gr. laga um fjárreiður ríkisins birt yfirlit yfir geymdar fjárheimildir og um þá aðila sem hafa farið fram úr fjárheimildum ársins. Í 37. gr. laganna er heimilt að geyma ónýttar fjárveitingar í lok reikningsársins og með sama hætti að draga umframgjöld fyrra árs frá fjárveitingu ársins.

Með frv. eru lagðar fyrir Alþingi niðurstöður ríkissjóðs fyrir árið 1998. Vísa ég til greinargerðar í fjáraukalögum og í ríkisreikning fyrir árið 1998 um meginatriðin í framvindu ríkisfjármála það ár og um helstu frávik á tekjum og útgjöldum á því ári. Þá hefur Ríkisendurskoðun lagt fyrir Alþingi skýrslu um endurskoðun ríkisreiknings 1998 og um hana hefur verið fjallað í fjárln.

Herra forseti. Ég hef farið nokkrum almennum orðum um frv. og hlutverk þess í tengslum um lög um fjárreiður ríkisins. Ég sé ekki ástæðu til að tíunda einstaka liði í frv. sem varða uppgjör samkvæmt fyrirliggjandi reikningi og ég legg til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjárln. þingsins.

Ég vil geta þess að endingu, herra forseti, að sambærilegt frv. til lokafjárlaga fyrir árið 1999 er á lokastigi í vinnslu í ráðuneytinu. Ég vænti þess að unnt verði að leggja það fram áður en jólaleyfi þingmanna hefst. Bæði þessi frv. og sú töf sem orðið hefur á afgreiðslu þeirra bera það með sér að hér er um að ræða fyrstu árin eftir að ný lög um fjárreiður ríkisins tóku gildi og hafa verið ákveðnir byrjunarörðugleikar við að koma þessum hlutum í þann búning að geti staðist til frambúðar. Ég geri mér góðar vonir um það að frá og með næsta hausti, haustinu 2001, verði búið að koma þessum málum í réttan farveg tímalega séð, þannig að við getum snemma næsta haust tekið til við að ræða lokafjárlög fyrir árið 2000. Þar með verði vonandi búið að koma þessum málum í endanlegan búning og þann farveg sem ætlast er til í lögunum um fjárreiður ríkissjóðs þannig að fjárln. þingsins gefist færi á að afgreiða slík mál samhliða því sem hún fjallar um fjáraukalög yfirstandandi árs og fjárlög þess næsta.