Málefni aldraðra

Miðvikudaginn 13. desember 2000, kl. 14:32:00 (3287)

2000-12-13 14:32:00# 126. lþ. 47.15 fundur 317. mál: #A málefni aldraðra# (Framkvæmdasjóður aldraðra) frv. 172/2000, Frsm. meiri hluta JBjart
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 126. lþ.

[14:32]

Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, 317. mál. Þetta er nál. meiri hluta hv. heilbr.- og trn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á fund sinn fulltrúa frá Landssambandi eldri borgara og jafnframt frá ASÍ.

Í frv. er kveðið á um hækkun á gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra. Samkvæmt athugasemdum við frv. hefur gjaldið ekki breyst frá 1. jan. 1997 og er sú hækkun sem lögð er til í frv. miðuð við hækkun vísitölu byggingarkostnaðar frá þeim tíma. Í 1. mgr. 10. gr. laga nr. 125/1999 segir að gjald þetta skuli koma til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert og telur meiri hlutinn að hækkunin sé í samræmi við ákvæðið og að rétt sé að miða hana við hækkun vísitölu byggingarkostnaðar eins og gert er í frv.

Fyrir liggur að stórum hluta sjóðsins hefur verið varið til rekstrar á stofnunum aldraðra í stað uppbyggingar eins og var upphaflega gert ráð fyrir þegar lög voru sett um Framkvæmdarsjóð aldraðra. Meiri hluti heilbr.- og trn. leggur áherslu á að viðbótarfé það sem innheimtist, verði frv. að lögum, renni til uppbyggingar enda má ætla af athugasemdum við frv. að slíkt sé ætlunin. Þar kemur fram að á höfuðborgarsvæðinu bíði um 560 manns eftir vistrými og þar af séu um 230 manns í mjög brýnni þörf fyrir hjúkrunarrými. Meiri hlutinn telur brýnt að hraða uppbyggingu til að mæta þeirri þörf sem fyrir er.

Meiri hlutinn leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.

Jón Kristjánsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Þuríður Backman skrifar undir álitið með fyrirvara. Að frátöldum framsögumanni skrifa undir þetta álit hv. þm. Tómas Ingi Olrich, Katrín Fjeldsted, Ásta Möller, Lára Margrét Ragnarsdóttir og eins og ég sagði fyrr, Þuríður Backman með fyrirvara.