Málefni aldraðra

Miðvikudaginn 13. desember 2000, kl. 14:45:25 (3290)

2000-12-13 14:45:25# 126. lþ. 47.15 fundur 317. mál: #A málefni aldraðra# (Framkvæmdasjóður aldraðra) frv. 172/2000, Frsm. meiri hluta JBjart
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 126. lþ.

[14:45]

Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz):

Herra forseti. Í nál. minni hluta hv. heilbr.- og trn. segir, sem ein röksemdin fyrir því að hann er ekki samþykkur frv. eins og það er, að hækkunin á gjaldinu, þó þetta sé ekki há fjárhæð, samsvari um 15% þeirrar launahækkunar sem lægst launuðu félagsmenn ASÍ o.fl. eigi von á um næstu áramót.

Ég vil fá að leiðrétta þetta. Þetta kom fram hjá fulltrúa ASÍ á fundi nefndarinnar og talað var um 15% af mánaðarlaunum, á mánaðargrunni.