Hjálmar Árnason (andsvar):
Herra forseti. Ég vil taka undir varnaðarorð hæstv. landbrh. því eitt óvarlegt skref í innflutningi dýra til Íslands kann að hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir land og þjóð eins og stutt saga hæstv. ráðherra um sunnlenska hunda bar með sér. Ég styð því varnaðarorð hæstv. ráðherra í þessu og hef nánast verið með böggum hildar yfir því að þurfa þó að fara í ágreining við vin minn, hæstv. landbrh. Málið snýst ekki eingöngu um að gæta varnaðar heldur spurninguna um hvar þessi einangrun gæti farið fram.
Ég vil þess vegna fagna og mér er mikill léttir að heyra að hæstv. ráðherra sé reiðubúinn að hlusta á rök. Ég vil því spyrja hvort það sé réttur skilningur minn að með ágætri ræðu sinni áðan hafi hann í raun verið að opna fyrir þann möguleika að einangrunarstöð geti verið annars staðar en eingöngu í Hrísey.