Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.
Mál þetta snýst um ákveðna aðlögun á tryggingagjaldinu, stofni þess, og felur fyrst og fremst í sér að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingarorlofs svo og greiðslur launagreiðenda vegna fæðingarorlofs, þó ekki hærri fjárhæð en sem nemur þeim hluta sem launagreiðandinn fær greiddan úr Fæðingarorlofssjóði, verði undanþegnar stofni tryggingagjalds.
Nefndin hefur fjallað um málið og gerir þá tillögu að frv. verði samþykkt óbreytt.